Terms of service
Skilmálar vefverslunar - LIFI
Seljandi: Knattspyrnufélagið Þróttur
Rekstraraðilli: Knattspyrnufélagið Þróttur kt. 470678-0119 VSK nr 22950
Engjavegur 7, 104 Reykjavik S: 580 5900 trottur@trottur.is
Kvittun er ávalt skilyrði fyrir vöruskilum :
- Gegn framvísun kvittunar eða gjafamiða getur þú skipti í aðra vörur eða fengið inneignarnótu.
- Til þess að fá vöruna endurgreidda í formi inneignar þarf hún að vera ónotuð, óskemmd, í heilum umbúðum og innan 30 daga frá dagsetningu kvittunar.
- Ef skilareglur eru ekki uppfylltar áskilur Þróttur sér sér rétt til að hafna vöruskilum.
- Verslun á vef þessum fer að öllu eftir íslenskum verslunarlögum, bæði hvað varðar skilarétt, ábyrgð og önnur réttindi seljanda og kaupanda.
Knattspyrnufélagið Þróttur áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilin er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru, verð og sendingarkostnaður: Öll verð í vefverslun er með inniföldum 24% vsk. Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Sendingar og burðargjald greiðist af kaupanda. Af öllum pöntunum dreift af Samskip og Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningskilmálar Samskips og Dropp um afhendingu vörunnar. Knattspyrnufélagið Þróttur ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Knattspyrnufélagið Þróttur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Að skipta og skila vöru í vefverslun: Viðskiptavinur hefur heimild samkvæmt lögum nr. 46/2000 um húsgöngu og fjarsölusamninga að skila vöru innan 14 daga og fá endurgreitt án þess að að tilgreina nokkra ástæðu. Við áskilum okkur rétt til að varan sé í upprunalegum óskemmdum umbúðum þegar henni er skilað og framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Frestur til að falla frá þessum samningi rennur út 14 dögum eftir daginn þegar þér eða þriðji aðili annar en flutningsaðilli, sem þér hafið tilgreint, hefur í reynd fengið vöruna í sína vörslu. Til þess að nýta réttin til að falla frá samningnum þurfið þér að tilkynna okkur, Knattspyrnufélagið Þróttur, Engjavegur 7, 104 Reykjavik, Sími 580 5900 netfang: trottur@trottur.is, ákvörðun yðar um að falla frá samningnum með ótvíðræðri yfirlýsingu (t.d., bréfi sendu í pósti, símbréfi eða tölvupósti) Til þess að uppsagnarfrestur teljist virtur nægir þér að senda tilkynningu yðar um að þér neytið réttar yðar til að falla frá samningi áður en uppsagnarfrestur rennur út. Ef þér fallið frá samningi munum við endurgreiða yður allar greiðslur sem við höfum fengið frá yður, þ.m.t. afhendingarkostnað (að undanskildum viðbótarkostnaði vegna þess að þér hafið valið annan afhendingarmáta en ódýrasta staðlaða afhendingarmáta sem við bjóðum), án ástæðulausrar tafar og alla jafna eigi síðar en 14 dögum eftir þann dag þegar okkur var tilkynnt um ákvörðun yðar um að falla frá þessum samningi. Við munum endurgreiða yður með því að nota sama greiðslumiðil og þér notuðu í upphaflegu viðskiptum, nema þér hafið samþykkt annað sérstaklega; í öllum tilvikum þurfið þér ekki að endurgreiða neinn kostnað af þessari endurgreiðslu. Við getum haldi eftir endurgreiðslu þar til við höfum fengið vöruna aftur eða þér hafið lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar, hvort sem kemur á undan. Þér þurfið að endursenda vöruna eða afhenda okkur hana, án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem þér tilkynnið okkur ákvörðun yðar um að falla frá samningnum. Fresturinn skal teljast virtur ef þér endursendið vöruna fyrir lok 14 daga tímabilsins. Þér þurfið að að bera beinan kostnað af endursendingu vörunar. Þér eruð aðeins ábyrg(ur) fyrir allri rýrnun á verðgildi vörunar sem stafar af meðferð hennar annarri en þeirri sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.
Gölluð vara: Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.
Trúnaður. (Öryggiskilmálar): Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar vera ekki veittar þriðja aðilla. Allar persónulegar upplýsingar um kaupanda vegna notkunar á vefsvæði LIFI.is verður farið með í samræmi við lög og reglugerðir um meðferð persónulegra upplýsinga eins og þær eru á hverjum tíma. Knattspyrnufélagið Þróttur áskilur sér rétt til að nýta eftirfarandi upplýsingar til markaðsrannsókna sem væntanlega leiða til betri þjónustu við okkar kaupendur. Kaupandi hefur rétt til að afla sér upplýsingar sem Knattspyrnufélagið Þróttur hefur um hann. Hafi kaupandi athugasemdir um þær upplýsingar þá hefur hann rétt til að fá þær leiðréttar eða afmáðar án kostnaðar.
Tölvupóstur og viðhengi hans sem starfsfólk Knattspyrnufélagið Þróttur sendir gætu innihaldið trúnarðarupplýsingar eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Sá sem fyrir tilviljun, mistök eða án heimildar tekur við tölvupóstinum, skal fara eftir 2.mgr.44.gr.laga.nr.107/1999 um fjarskipti og gæta fyllsta trúnaðar og tilkynna sendanda samstundis að upplýsingar hafi ranglega borist sér.
Lög og varnaþing: Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.