LIFI KORTIÐ

SLÁÐU Í TAKT VIÐ HJARTAÐ Í LAUGARDALNUM!
LIFI kortið er nýtt rafrænt áskriftarkort Þróttar og með kaupum á því styður þú ekki bara félagið þitt heldur verður um leið partur af þéttum og skemmtilegum hópi stuðningssveitar Þróttar. Ekki klikka á kortinu, það margborgar sig!


Skrá mig LIFI Kjör
Það voru nokkrir ungir og þrælsprækir menn, sem var rótin að stofnun Köttaranna – vinir sem höfðu alist upp og kynnst í Þrótti – voru nú hættir formlegri boltaiðkun en langaði að leggja sitt af mörkum til að styðja félagið sitt, mættu á heimavöll félagsins í Sæviðarsundi og þóttu með eindæmum, léttir, uppfinningarsamir og í það heila léttruglaðir á sinn gamanasama hátt. Mesta  hrósyrði sem leikmenn gætu fengið af þeirra hálfu, var að þeir væru köttaðir, þ.e. sjá mætti í línurnar í sundi. Og frá þessum hópi kom slagorð Þróttar, Lifi Þróttur, sem síðan hefur lifað með félaginu enda einstakt. 

Shop now →